Khloe Kardashian sló heimsmet með gallabuxunum sínum Ritstjórn skrifar 7. desember 2016 15:30
Það er engin takmörk fyrir mætti Kardashian fjölskyldunnar, það hefur sannað sig í gegnum tíðina. Það á ekki síður við Khloe Kardashian sem sló heimsmet í október þegar hún hóf sölu á sinni eigin gallabuxnalínu. Merkið hennar heitir Good American og selur gallabuxur fyrir konur í öllum stærðum. Það sem meira er að á vefsíðunni þar sem buxurnar eru seldar eru fyrirsæturnar í mörgum mismunandi stærðum, ekki aðeins þær sem passa í minnstu stærðirnar. Þetta virðist hafa fallið vel í kramið hjá viðskiptavinum enda seldi Khloe gallabuxur fyrir eina milljón dollara á fyrsta deginum. Það mun vera stærsti opnunardagur í sögu gallabuxna. Buxurnar hafa selst afar vel en ein tegund hefur selst upp tvisvar sinnum. Buxurnar fóru í sölu um miðjan október. Lítið er eftir af vörum á síðunni en von er á fleiri vörum og vörulínum strax á nýju ári. Auglýsingarnar fyrir buxurnar innihalda fyrirsætur af öllum stærðum.
Mest lesið Vel skóuð inn í veturinn Glamour Lærðu að farða þig eins og Adele Glamour 16 hlutir sem bara besta vinkona þín myndi segja þér um óléttu og fæðingar Glamour Serena Williams situr fyrir í Sports Illustrated Glamour Adidas hefur selt yfir 50 milljón pör af Stan Smith skóm Glamour Hedi Slimane kveður Saint Laurent Glamour Veldu þínar uppáhaldssnyrtivörur Glamour Kraftgallinn er kominn aftur Glamour „Eins og að vera í öskubuskuævintýri“ Glamour Lily-Rose Depp nýtt andlit Chanel Glamour