Körfubolti

Stórleikur í Sláturhúsinu og baráttan um norðurlandið í 16 liða úrslitum bikarsins

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Amin Steven er búinn að spila frábærlega fyrir Keflavík.
Amin Steven er búinn að spila frábærlega fyrir Keflavík. vísir/eyþór
Stórleikur 16 liða úrslita Maltbikars karla í körfubolta verður í Sláturhúsinu í Keflavík þar sem heimamenn taka á móti Þór úr Þorlákshöfn.

Keflavík vann El Clasico gegn Njarðvík í gærkvöldi og komst þannig í 16 liða úrslitin en dregið var í dag. Keflavík á harma að hefna gegn Þórsurum sem slógu þá út í undanúrslitunum á síðustu leiktíð.

Haukar mæta varaliði sínu Haukum b og þá verður barátta um norðurlandið þar sem nýliðarnir í Dominos-deildinni, Þór frá Akureyri, fær Tindastól í heimsókn. Þau eru nú þegar búin að mætast einu sinni á leiktíðinni en þá hafði Tindastóll betur á heiamvelli.

Ríkjandi bikarmeistarar KR fá Fjölni í heimsókn og úrvalsdeildarslagur verður í Röstinni þar sem Grindavík mætir ÍR.

Drátturinn í 16 liða úrslit karla:

Njarðvík b - Höttur

Keflavík - Þór Þ.

Valur - Skallagrímur

FSu - Sindri

Grindavík - ÍR

Haukar - Haukar b

Þór Ak. - Tindastóll

KR - Fjölnir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×