Lífið

Árbæjarskóli og Ölduselsskóli áfram í Skrekk

Stefán Árni Pálsson skrifar
Til vinstri má sjá mynd frá atriði Árbæjarskóla og til hægri Ölduselsskóla.
Til vinstri má sjá mynd frá atriði Árbæjarskóla og til hægri Ölduselsskóla. myndir/Anton Bjarni Alfreðsson
Annað undanúrslitakvöld Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík, fór fram í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Átta skólar stigu á stokk með frumsamin atriði. Skólarnir sem komust áfram í kvöld voru Árbæjarskóli og Ölduselsskóli.

Borgarleikhúsið var þétt setið unglingum úr 8., 9. og 10. bekk sem studdu sína skóla vel áfram. Átta grunnskólar munu keppa til úrslita í Skrekk mánudaginn 14. nóvember, en alls taka 24 skólar þátt í keppninni. Úrslitunum verður sjónvarpað beint á RÚV.

Nú eru því Ölduselsskóli, Árbæjarskóli, Hlíðaskóli og Réttarholtsskóli komnir áfram. Á morgun er síðasta undankvöldið og þá komast tvö atriði til viðbótar áfram.

Meðfylgjandi eru myndir af þeim atriðum sem komust áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.