Bíó og sjónvarp

Drykkfelldur borgarstjóri sem vantar góða konu og góðan bíl

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það nýjasta úr smiðju Jóns Gnarr er sjónvarpsþátturinn Borgarstjórinn sem hefur göngu sína á Stöð 2 þann 16. október.

Að þættinum koma margir af fremstu gamanleikurum þjóðarinnar og má búast við að þarna verði tekið á heimi pólitíkur af mikilli þekkingu og með beittum húmor enda kemur þessi þáttaröð frá fyrrverandi borgarstjóra sem hefur auðvitað verið í innsta kjarna í ráðhúsi Reykjavíkur og þekkir þar líklega hvern krók og kima.

Líklega má fullyrða að í heiminum hafi grínisti sjaldan verið í þessari stöðu við skrif á þáttaröð sem þessa.

Nú hefur Vísir fengið í hendurnar glænýja stiklu úr þáttunum og bíða eflaust margir spenntir eftir þessari seríu. Hér að ofan má sjá nýjasta sýnishornið úr þáttunum Borgarstjórinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×