Bílar

Samsung Galaxy Note 7 gereyðilagði jeppa

Finnur Thorlacius skrifar
Bíllinn í ljósum logum vegna símans.
Bíllinn í ljósum logum vegna símans.
Íbúi í Flórída ríki í Bandaríkjunum er bæði síma og jeppa fátækari eftir að eldur kviknaði í farsíma hans sem var í hleðslu í bílnum. Eigandi bílsins hafði skilið símann eftir í hleðslu inní bílnum á meðan hann gerði stutt stopp fyrir utan heimili sitt.

Þegar hann kom aftur að bílnum stóð hann í ljósum logum og gerðeyðilaggðist jeppi hans, sem er af gerðinni Jeep Cherokee. Slökkviliðið náði að slökkva eldinn í bílnum en hann er engu að síður gerónýtur eftir brunann.

Samsung Galaxy Note 7 símarnir komu á markaðinn í ágúst síðastliðnum og hafa ófáir þeirra týnt tölunni síðan er kviknað hefur í þeim. Samsung hefur innkallað þessa gerð síma í 10 löndum og eigendur þeirra hafa fengið nýja síma í hendurnar þeim að kostnaðarlausu.


Tengdar fréttir

Samsung stöðvar sölu á Galaxy Note 7

Fréttir hafi borist bæði frá Bandaríkjunum og Suður-Kóreu um að síminn hafi sprungið á meðan á hleðslu stendur eða að henni lokinni.






×