Lífið

Hvað er að fara að gerast í Kórnum?

Guðrún Ansnes og Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifa
Alvöru leisersjó, LED-sturlun, 40 tonn af græjum, tvö tonn af vatni, fjórir kílómetrar af öryggisgirðingum og tveimur stærstu hljóðkerfum landsins splæst saman.
Alvöru leisersjó, LED-sturlun, 40 tonn af græjum, tvö tonn af vatni, fjórir kílómetrar af öryggisgirðingum og tveimur stærstu hljóðkerfum landsins splæst saman.
Justin Bieber hefur Evróputúr sinn, PURPOSE, í Kórnum í Kópavogi þann 9. september næstkomandi. Alþjóð er sennilega með það á tandurhreinu.  

Hann tekur reyndar forskot á sæluna og skellir upp aukatónleikum deginum áður, þann áttunda. Þar sem hann er ein fyrirferðarmesta poppstjarna okkar tíma er eðlilega heilmikið havarí í kringum tónleikahaldið.

Samkvæmt heimildum Vísis og Fréttablaðsins ferðast til að mynda býsna áhrifamikið fólk í bransanum með honum til landsins, og ber þar helst að nefna allt lykilfólkið úr umboðsmannateymi hans sem og háttsettir aðilar frá AEG, einu stærsta tónleikafyrirtæki í heimi.

Þá hefur heyrst að mikil spenna sé í herbúðum Bieber-teymisins fyrir landi og þjóð. Hópurinn ku jafnframt vera meðvitaður um að tólf prósent þjóðarinnar ætli að mæta á tónleikana. Þá hefur Bieber haft á orði hversu spenntur hann sé fyrir komunni hingað, enda elski hann landið. Heyrst hefur að nú þegar séu næstu stórtónleikar í Kórnum í farvatninu.

En eðli málsins samkvæmt eru margir orðnir yfir sig spenntir fyrir herlegheitunum og velta fyrir sér við hverju eigi að búast á sviðinu í september. Fréttablaðið og Vísir hafa heimildir fyrir eftirfarandi sem eflust kinda upp í aðdáendum goðsins:

Justin bieber
Bieber og vatnið: Sviðsmyndin er sögð þannig að Bieber þarf að hafa tvö tonn af vatni til umráða í einu atriði tónleikanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.