Er Bieber byrjaður með dóttur Lionel Richie? Ritstjórn skrifar 10. ágúst 2016 12:00 Glamour/Getty
Sú saga fer nú fjöllum hærra að poppstjarnan Justin Bieber sé byrjaður með 17 ára fyrirsætunni Sophiu Richie. Parið hefur sést leiðast opinberlega sem og að fyrirsætan sást hoppa upp í bíl fyrir utan heimili Biebers snemma morguns, sem þykir renna stoðum undir þessar slúðurfréttir. Reyndar sást til Bieber í sundi með annarri fyrirsætu, Sahöru Rey, í síðustu viku svo hvað vitum við um ástarlíf söngvarans ... En það sem er skemmtilegt er að Sophia er yngsta dóttir söngvarans Lionel Richie, sem þýðir að Bieber gæti orðið nýjasti tengdasonur hans og fjölskylduboðin þar á bæ því áhugaverð, ef rétt reynist.
Justin Bieber á Íslandi Mest lesið Gaf drottningunni syngjandi hamstur Glamour Hvað verður hún í ár? Glamour Galdurinn við ,,gillið" Glamour Smekkbuxurnar mættar aftur Glamour Þetta voru mest seldu snyrtivörurnar á Amazon árið 2016 Glamour Sjö spennandi íslenskir hönnuðir að fylgjast með Glamour Verum í stíl Glamour Erindagjörðir Kim Kardashian: Frumleg markaðsherferð? Glamour Victoria's Secret tískusýning verður haldin í París þetta árið Glamour Sarah Jessica Parker opnar sína fyrstu verslun Glamour