Arna Stefanía og Ásdís með þrjú gull á MÍ um helgina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2016 06:00 Arna Stefanía Guðmundsdóttir bætti sig í öllum þremur gullgreinunum sínum. Vísir/Anton
Ásdís Hjálmsdóttir vann þrjár kastgreinar og Arna Stefanía Guðmundsdóttir sýndi fjölhæfni sína á hlaupabrautinni á 90. Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fór fram um helgina á Akureyri. Arna Stefanía sigraði í 200 og 400 metra hlaupi og í 100 metra grindahlaupi og náði sínum besta árangri í öllum þremur greinunum. 400 metra hlaupið hjá henni var bæði aldursflokkamet og mótsmet. Kolbeinn Höður Gunnarsson vann bæði spretthlaupin hjá körlunum, 100 metra hlaupið og 200 metra hlaupið, en hann kom í mark í 100 metra hlaupinu á 10,61 sekúndum. Ólympíufarinn Guðni Valur Guðnason vann kringlukastið örugglega og Vigdís Jónsdóttir úr FH setti mótsmet í sleggjukasti þegar hún kastaði 57,11 metra. FH hlaut bæði flest verðlaun (32) og flest gull (17) en ÍR fékk 14 gull og 28 verðlaun alls. FH vann stigakeppni félaga og karlakeppnina en ÍR varð efst í kvennakeppninni. Arna Stefanía Guðmundsdóttir átti tvö bestu afrek mótsins samkvæmt stigatöflu IAAF en hún fékk 1.053 stig fyrir 400 metra hlaup kvenna og 1.036 stig fyrir 100 metra grindarhlaup. 200 metra hlaup hennar varð síðan fjórði besti árangur mótsins á eftir hlaupi Hrafnhildar Eirar R. Hermóðsdóttur í 100 metra hlaupi kvenna. Kolbeinn Höður Gunnarsson fékk flest stig hjá körlunum fyrir 100 metra hlaup karla.
Frjálsar íþróttir Mest lesið „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti Dagskráin í dag: Lengjubikar kvenna, úrvalsdeildin í keilu og NBA Sport Fleiri fréttir „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar „Við þurfum annan titil“ Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum „Við vorum yfirspenntar“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Sjá meira