Tónlist

Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar frumsýna nýtt myndband á Vísi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegt lag.
Skemmtilegt lag. vísir
Þar sem malbikið svífur mun ég dansa er titill lags sem kom út á samnefndri plötu Jónasar árið 2007. Það hljómar hér þessu splunkunýja myndbandi í nýrri útgáfu sem er lifandi upptaka Jónasar og Ritvéla hans frá því í tónleikaferð þeirra í október 2015, nánar tiltekið í Frystiklefanum á Rifi, Græna Hattinum og á Café Rósenberg. 

Síðar í þessum mánuði ætla Jónas og Ritvélarnar að leggjast í ferðalag þegar þau keyra hringinn í krinum landið og halda tónleika á 7 stöðum á 7 dögum. Miðasalan rauk af stað og er nú þegar búið að seljast upp á einhverja tónleikana, en viðkomustaðirnir eru þessir: 

Fjarðarborg á Borgarfirði eystri 22. júlí - Félagsheimilið Hvammstanga 23. júlí - Menningarhúsið Berg á Dalvík 24. júlí - Félagsheimilið Brúarás 25. júlí - Mosskógur í Mosfellsdal 26. jlí - Félagsheimilið Gunnarshólmi í Landeyjum 27. júlí - Félagsheimilið Flúðum 28. júlí

Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar eru annáluð fyrir lifandi flutning á lögum og textum Jónasar en hann hefur gefið út þrjár plötur og hafa fjölmörg lög af þeim hlotið verðskuldaða athygli og mörg ratað hátt á vinsældarlista landsins.

Á tónleikunum verður hægt að kaupa nýútkomna plötu sem inniheldur öll vinsælustu lög Jónasar ásamt lifandi upptökum og áður óútgefnu efni, þar á meðal lagið sem hér heyrist. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.