Lífið

Fylgstu með strákunum okkar koma heim í beinni

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Strákarnir okkar eru á leiðinni heim.
Strákarnir okkar eru á leiðinni heim. Vísir/Vilhelm
Strákarnir okkar eru lagðir af stað heim til Íslands eftir frábæra frammistöðu á EM í Frakklandi. Eru þeir nú um borð í vél Icelandair sem lagði af stað frá Zürich í Sviss, með viðkomu í Lyon í Frakklandi, þar sem landsliðsmennirnir komu um borð.

Fylgjast má með flugferðinni á gagnvirku korti hér fyrir neðan.

Gert er ráð fyrir að strákarnir lendi í Keflavík rétt eftir klukkan 18 í kvöld. Þaðan munu þeir halda í miðborg Reykjavíkur þar sem búið er að skipuleggja mikil fagnaðarlæti til heiðurs strákunum.

Landsliðið muni aka í opinni rútu frá Skólavörðuholti um klukkan 19:00 í virðingarfylgd lögreglu, niður Skólavörðustíg og Bankastræti að Arnarhóli. Þar fer fram hátíðardagskrá og verður landsliðshópurinn hylltur fyrir frábæra frammistöðu sína.

Uppfært 18.10 Flugvél drengjanna er lent á Keflavíkurflugvelli og hefst nú ferðalagið frá Keflavík til Reykjavíkur. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.