Lífið

Vilhjálmur prins brýtur blað: Situr fyrir á forsíðu tímarits hinsegin fólks

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Forsíða blaðsins.
Forsíða blaðsins. Mynd/Attitude
Mynd af Vilhjálmi Bretaprins, prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs tímaritsins Attitude, tímariti hinsegin fólks í Bretlandi. Er hann fyrsti meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar til þess að birtast á forsíðu slíks tímarits.

Tímaritið fer í sölu næsta miðvikudag en þar verður greint frá heimsókn LGBT-fólks í Kensington-höll þar sem þau ræddu reynslu sína af ofsóknum og fordómum. Í tímaritinu segir Vilhjálmur að enginm eigi að þola það að sæta ofbeldi eða einelti vegna kynhneigðar sinnar. Forsíðuna má sjá hér fyrir neðan.



Forsíðan í heild sinni.Mynd/Attitude





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.