Golden State skoraði 60 stig í fyrri hálfleik en tapaði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2016 07:37 Kevin Durant í leiknum í nótt. Vísir/Getty
Úrslitaeinvígi vesturdeildarinnar í NBA-deildinni fór af stað með látum í nótt þegar Oklahoma City Thunder gerði sér lítið fyrir og vann meistara Golden State Warriors á útivelli, 108-102. Oklahoma City kom mörgum á óvart með því að slá San Antonio Spurs úr leik í undanúrslitum vestursins en sýndi í nótt að sá árangur var engin tilviljun. Golden State hefur ekki þurft að hafa mikið fyrir hlutunum í úrslitakeppninni hingað til og virtist á góðri leið með að vinna sigur í nótt en liðið var yfir að loknum fyrri hálfleik, 60-47.En Oklahoma City fór í fluggírinn í þriðja leikhluta og þá sérstaklega Russell Westbrook sem skoraði nítján stig í honum. Hann var alls með 27 stig í leiknum, þar af 24 í síðari hálfleik. Gestirnir tóku svo forystuna í fjórða leikhluta og náðu að halda Oklahoma City í aðeins fjórtán stigum. Lokasekúndurnar voru þó spennandi en Kevin Durant setti niður körfuna sem tryggði sigurinn þegar 30 sekúndur voru eftir. Hann var alls með 26 stig í leiknum. Steph Curry, besti leikmaður deildarinnar, skoraði einnig 26 stig í leiknum og tók tíu fráköst. Hann byrjaði leikinn af krafti en hitti illa í síðari hálfleik, rétt eins og allt lið Golden State. Liðið hefur ekki skorað svo fá stig í úrslitakeppninni, hvorki í síðari hálfleik (42) né fjórða leikhluta (14). Klay Thompson var með 25 stig í leiknum, þar af nítján í fyrri hálfleik. Hann nýtti þrjú af tíu skotum sínum í síðari hálfleik. Annar leikur liðanna í rimmunni fer fram annað kvöld og verður einnig á heimavelli Golden State.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira