Gagnrýni

Vera, vatnið og vitundin

Kara Hergils Valdimarsdóttir skrifar
Snædís Lilja Ingadóttir í hlutverki sínu í danssýningunni Vera og vatnið.
Snædís Lilja Ingadóttir í hlutverki sínu í danssýningunni Vera og vatnið.
Dans

Vera og vatnið

Höfundar: Bíbí & blaka danshópurinn

Dans: Tinna Grétarsdóttir

Flutningur: Snædís Lilja Ingadóttir

Tónlist: Sólrún Sumarliðadóttir

Sviðsmynd og búningar: Guðný Hrund Sigurðardóttir



Veran Vera leikur með vatnið og vatnið er djúpt, eins og vitund mín sjálfs.

Leikverkið Vera og vatnið er ævintýralega fallegt barnadansverk sem er nú sýnt í Tjarnarbíói. Verkið er ætlað börnum 1-5 ára og forráðamönnum þeirra. Veran Vera birtist úr vatninu og leikur sér í og með því. Hún kannar dýptir þess og form og hvernig vera eins og hún getur passað og leikið við vatnið.

Umgjörðin er sérlega vel hönnuð og eru börnin sannarlega komin inn í fallegan heim þegar þau heimsækja Veru. Þau eiga þann möguleika að sitja á litlum skýjum í kringum vatnið þar sem Vera dansar. Það gefur þeim nálægð sem færir þau enn nær sýningunni.

Verkið er samtímadansverk með leikrænum tilþrifum þar sem Snædís Lilja er algjörlega í essinu sínu, þ.e. býr ljóslega að bakgrunni sínum í dansi og leiklist. Snædís er sjarmerandi og létt í flutningi sínum. Það er verulega flott að sjá samtímadansverk fyrir börn sem gefur þeim tækifæri að kynnast listforminu á ungum aldri.

Leikmyndin og búningar, hönnuð af Guðnýju Hrund, eru stórkostlega skemmtileg og vel gerð. Má þá sérstaklega nefna litla slá sem Vera klæðist í byrjun verksins. Hún er ekkert flókin, en gefur Snædísi algjörlega nýtt form, og kemur hún áhorfendum fyrir sjónir sem lítil vera. Tónlistin er líka vel samin og kemur til skila tilfinningu fyrir litlum dropum sem drjúpa beinlínis niður á sviðið.

Að verkinu loknu fengu börnin að leika sér í sviðsmyndinni og hitta veruna sem þau flutu með í gegnum sýninguna. Það var þroskandi fyrir börnin sem fengu þá að koma við dropa sem héngu úr sviðsmyndinni en einnig að koma við þá hluti sem ekki voru eins og þeir sýndust. Þannig fengu þau að kynnast töfrum leikhússins. Til að mynda má nefna lítinn hvítan blett á dansgólfinu þar sem Vera gat illa staðið í lappirnar vegna þess hvað hann átti að vera sleipur. Þetta var sem sagt hálkublettur sem hún rann ítrekað á. Þetta vakti stórkostlega kátínu krakkanna sem vildu svo ólm prófa svellið þegar þau komu inn. Þau skildu svo ekkert í því að þau lágu þar ekki kylliflöt!

Verkið er stutt og þyldi ekki heldur að vera mikið lengra án meiri framvindu.

Niðurstaða: Fallega unnið og skemmtilegt samtímadansverk fyrir börn.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 19. maí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.