Oklahoma City svaraði fyrir sig Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. maí 2016 07:26
Oklahoma City náði að svara fyrir tapið stóra í fyrsta leiknum í undanúrslitarimmu vestursins í úrslitakeppninni NBA-deildarinnar gegn San Antonio með sigri í nótt, 98-97. San Antonio hefur verið nánast ósigrandi á heimavelli í vetur og yfirspilaði Oklahoma City í leik liðanna um helgina. Heimamenn fengu reyndar tækifæri til að tryggja sér sigur í nótt en þeir náðu ekki að skora á lokasekúndum leiksins. Patty Mills fékk opið þriggja stiga skot en það geigaði. San Antonio náði líka sókanrfrákastinu en náði ekki að skjóta áður en tíminn rann út. Russell Westbrook skoraði 29 stig fyrir Oklahoma City og gaf þar að auki tíu stoðsendingar. Kevin Durant kom næstur með 28 stig. LaMarcus Aldridge skoraði 41 stig fyrir San Antonio sem var með samtals 43 prósent skotnýtingu í nótt, samanborið við 61 prósent í fyrsta leiknum. Þriðji leikur liðanna er á föstudagskvöld. Cleveland vann Atlanta, 104-93, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum austursins. LeBron James skoraði 25 stig fyrir Cleveland og Kyrie Irving 21 stig. Cleveland byrjaði mun betur og náði mest átján stiga forystu í síðari hálfleik. Atlanta kom þó til baka og komst yfir snemma í fjórða leikhluta. En Cleveland tók þá aftur völdin í leiknum og vann áttunda sigur sinn gegn Atlanta í úrslitakeppninni í röð. Næsti leikur liðanna fer fram annað kvöld.NBA í nótt: Cleveland - Atlanta 104-93 San Antonio - Oklahoma City 97-98
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira