Toronto jafnaði metin eftir framlengdan leik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. maí 2016 07:23 DeMar DeRozan og DeMarre Carroll skoruðu samtals 41 stig fyrir Toronto. vísir/getty
Toronto Raptors jafnaði metin í einvíginu við Miami Heat í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA með fjögurra stiga sigri, 96-92, í öðrum leik liðanna í nótt. Staðan í rimmu liðanna er nú 1-1 en næstu tveir leikir fara fram í Miami. Toronto leiddi mest með 14 stigum en var komið í erfiða stöðu um miðjan 4. leikhluta þegar Miami náði sjö stiga forskoti, 70-77. Toronto-menn sýndu hins vegar styrk á lokakaflanum og Kyle Lowry kom liðinu í 86-83 þegar hann setti niður skot þegar tæpar 15 sekúndur voru eftir. Goran Dragic átti hins vegar síðasta orðið í venjulegum leiktíma þegar hann negldi niður þrist 10,5 sekúndum fyrir leikslok og því þurfti að framlengja. Toronto skoraði sex fyrstu stigin í framlengingunni og þá var ekki aftur snúið. Miami var í vandræðum í sókninni og heimamenn lönduðu fjögurra stiga sigri, 96-92. DeMarre Carroll var stigahæstur í liði Toronto með 21 stig en DeMar DeRozan kom næstur með 20 stig. Lowry gerði 18 stig og þá skilaði litháíski miðherjinn Jonas Valanciunas 15 stigum og 12 fráköstum. Dragic skoraði 20 stig fyrir Miami og þeir Joe Johnson og Dwayne Wade sitt hvor 17 stigin.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira