Lífið

Tífalt fleiri í streetdansi

Lóa Pind skrifar
Luis Lucas Antonio Cabambe, 16 ára sjarmatröll í Breiðholtinu, er einn af fjölmörgum ungmennum á höfuðborgarsvæðinu sem æfa svokallaðan streetdans. Áhugi á streetdansi hefur sprungið út á síðustu árum. Að sögn Brynju Pétursdóttur, sem rekur eina sérhæfða streetdansskóla landsins, hefur nemendafjöldinn í Dans Brynju Péturs tífaldast frá stofnun skólans fyrir fjórum árum. Nú æfa þar um 400 börn og unglingar, af u.þ.b. 13 þjóðernum og í dag er skólinn starfræktur á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu.

Luis, sem dansar hér í myndskeiðinu í strætó á leið til vinnu, er einn af fimm aðalpersónum í nýrri þáttaröð Lóu Pind - Battlað í borginni. Í þáttunum verður fylgst með fimm kraftmiklum ungmennum af erlendum uppruna æfa sig fyrir danskeppni, svokallað battl. Í battlinu keppa tvö ungmenni í einu, þar til einn stendur uppi sem sigurvegari. Luis er önnum kafinn piltur, stundar nám í Fjölbraut í Breiðholti, er í aukavinnu, dansnámi og nýtir hverja stund til að æfa sig - líka þegar hann tekur þrjá strætisvagna úr Hólunum í vinnuna sína út á Granda.

Fyrsti þáttur af Battlað í borginni fer í loftið á mánudagskvöld, 2. maí, kl. 20:25, á Stöð 2. Þar kynnumst við Luis frá Angóla, Beötu frá Póllandi og Carinu frá Rúmeníu, danshæfileikum þeirra og skyggnumst um leið inn í líf unglinga af erlendum uppruna á Íslandi. Umsjón hefur Lóa Pind Aldísardóttir, myndatökumaður er Egill Aðalsteinsson, klippingu annast Ólafur Chelbat.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.