Tónlist

MC Póló krefst diskókúlu

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Svavar Pétur tekur það ekki í mál að koma fram án þess að á staðnum sé diskókúla.
Svavar Pétur tekur það ekki í mál að koma fram án þess að á staðnum sé diskókúla.
Í nýlegri færslu Austurfrétta sem fjallar um gleðskap vegna nýrrar rafstöðvar á Djúpavogi er minnst á dularfullan listamann sem kallar sig MC Póló. Þar á ferð er víst enn eitt hliðarsjálf Svavars Péturs Eysteinssonar, bónda á Karlsstöðum, sem flestir þekkja þó undir listamannanafninu Prins Póló.

Svavar var undir feld þegar Vísi náði tali af honum að leggja lokahönd á undirbúningsvinnu fyrir nýja partýljónið sem verður opinberað í nýrri Rafstöð Djúpavogs annað kvöld.

„Maður verður að bregða sér í alls kyns kvikindalíki þegar maður er beðinn að takast á við hin ýmsu verkefni. Maður verður að sníða sér stakk eftir vexti,“ segir Svavar um MC Póló og tekur fram að hann verði einn á sviðinu. „Ég bauð mig fram sem til þess að trylla lýðinn í partýinu en það var ekki alveg pláss fyrir Prinsinn.“

Aðeins meira en bara plötusnúður

Þetta nýja hliðarsjálf Svavars mun að mestu þeyta skífum en forskeytið MC gefur einnig til kynna að gripið verði í míkrafóninn og jafnvel rappað.

„Ég er að hugsa um að spila lög eftir sjálfa mig og aðra og reyna rappa eitthvað ofan á það og á milli laga. Ég ætla að reyna gera eitthvað aðeins meira en að vera bara Dj.“

Í færslu Austurfréttar er gert mikið úr kröfum stjörnubóndans um tækjabúnað fyrir uppákomuna. En hann bað ekki um mikið.

„Ég var spurður hvað ég færi fram á að yrði á staðnum og ég bað bara um diskókúlu. Það er eina krafa mín. Það ætti að tryggja stuðið.“

Samkvæmt auglýsingu um viðburðinn verður boðið upp á sígildar gamansögur, klappstóla, saltstangir, gos, rafstöðvarbjór, MC Pólo og diskókúlu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.