Tónlist

Mjög sérstakur sleikur körfuboltadómara eins og „á B5 klukkan fimm“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rapparinn og körfuboltadómarinn Davíð Tómas Tómasson, Dabbi T, sendi frá sér sitt fyrsta lag í fimm ár í dag. Lagið heitir Blár og myndbandið við lagið má sjá hér að neðan. Davíð ræddi endurkomu sína í rappbransann í Fréttablaðinu í dag og heimsótti strákana í Brennslunni í morgun.

Myndbandið er nokkuð krassandi en þar fer Davíð í sleik við annan karlmann. Hann segir það hafa verið mjög sérstakt og skrýtið.

„Þetta er passion. Það er eins og við séum á b5 klukkan fimm á leiðinni heim saman. Þetta er alvöru dæmi.“

Davíð var spurður út í það hvort hann þyrfti að velta fyrir sér hvort það samræmdist dómara að fara í sleik í tónlistarmyndböndum. Hvort þetta gefði ekki skotleyfi á dómara sem nú þegar þurfa oft að sitja undir mikilli gagnrýni.

Hann segist hafa velt hlutunum fyrir sér en Davíð er einn fremsti körfuboltadómari landsins.

„Ég átti þessa umræðu við þá sem eru í dómaranefnd. Þetta hefur legið á mér og ég hugsað þetta. Þeir sem eru í dómaranefndinni núna segja að það eigi ekki að stoppa mig í að gera eitthvað svona,“ segir Davíð.

Hann viti um marga í dómgæslubransanum sem séu ekki ánægðir með þetta.

Myndbandið má sjá að neðan en spjall Davíðs við strákana í Brennslunni að ofan.


Tengdar fréttir

Uppgjör við fyrri lífsstíl

Davíð Tómas Tómasson, eða Dabbi T, gefur út myndband við lagið Blár í dag. Lagið er það fyrsta sem hann gefur út í 5 ár og einnig er um að ræða fyrsta skiptið sem hann gefur út myndband.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.