Indiana jafnaði metin á heimavelli Kristinn Páll Teitsson skrifar 24. apríl 2016 11:00
Indiana Pacers vann öruggan 17 stiga sigur á Toronto Raptors 100-83 í nótt en með sigrinum jafnaði Indiana metin í einvígi liðanna í úrslitakeppni Austurdeildarinnar í NBA-deildinni. Toronto hafði unnið tvo leiki í röð eftir óvæntan sigur Indiana Pacers í Kanada í fyrstu leik liðanna og voru heimamenn því undir töluverðri pressu fyrir leik liðanna í nótt. Ian Mahinmi og George Hill fóru fyrir liði Indiana Pacers sem náði forskotinu strax á upphafsmínútum leiksins og leiddi með 15 stigum í hálfleik. Gestirnir frá Kanada náðu ekki að ógna forskoti heimanna í seinni hálfleik sem unnu að lokum öruggan sigur en næsti leikur liðanna fer fram í Toronto. Þá vann Oklahoma City Thunder mikilvægan sigur á Dallas Mavericks í nótt en eftir sigurinn er Oklahoma með 3-1 forskot í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Vesturdeildarinnar. Eins og oft áður fór Russell Westbrook fyrir liði Oklahoma í nótt en Westbrook lauk leiknum með 25 stig og 15 fráköst. Þá náðu leikmenn Charlotte Hornets að minnka muninn á heimavelli gegn Miami Heat í nótt í 1-2 í einvígi liðanna. Var þetta fyrsti sigur Charlotte Hornets í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í fjórtán ár. Í lokaleik kvöldsins náði Portland Trailblazers að vinna þriðja leikinn í einvígi liðsins gegn Los Angeles Clippers. Damian Lillard var stigahæstur í liði Portland með 30 stig en hann gerði endanlega út um leikinn með tveimur vítaskotum þegar 24 sekúndur voru til leiksloka.Úrslit kvöldsins: Indiana Pacers 100-83 Toronto Raptors Charlotte Hornets 96-80 Miami Heat Dallas Mavericks 108-119 Oklahoma City Thunder Portland Trailblazers 96-88 Los Angeles Clippers
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira