Tónlist

Sjáðu grafalvarlegan flutning J-Lo á Baby Got Back

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lagið öðlast nýja dýpt í flutningi J-Lo.
Lagið öðlast nýja dýpt í flutningi J-Lo. Mynd/skjáskot
Jennifer Lopez er þekkt fyrir sína miklu hæfileika á ýmsum sviðum og hún hefur nú sýnt á sér nýja hlið. Hinn nýji vefur The Scene fékk hana til þess að leiklesa hið klassíska lag Baby Got Back sem Sir Mix-A-Lot sprengdi vinsældarlistana með í upphafi tíunda áratug síðustu aldar.

Það er óhætt að segja að flutningur Jennifer Lopez á laginu sé grafalvegar og ekki er laust við að lagið öðlist nýja og áður óþekkta dýpt með rödd J-Lo.

Baby Got Back gerði allt vitlaust árið 1992 þegar það kom fyrst út. Var það annað vinsælasta lag ársins það ár en aðeins hið ódauðlega lag Whitney Houston, I Will Always Love You, gat skákað Sir Mix-A-Lot.

Baby Got Back með Sir Mix-A-Lot í sinni upphaflegu mynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.