Kawhi Leonard besti varnarmaður NBA annað árið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. apríl 2016 14:30 Kawhi Leonard. Vísir/Getty
Kawhi Leonard, leikmaður San Antonio Spurs, hefur verið valinn besti varnarmaður NBA-deildarinnar í körfubolta en hann fékk þessi eftirsóttu verðlaun einnig í fyrra. Kawhi Leonard fékk alls 547 stig og 84 atkvæði í fyrsta sætið en 130 fjölmiðlamenn sem vinna við NBA-deildina fengu að kjósa. ESPN segir frá. Í öðru sæti varð Draymond Green hjá Golden State Warriors með 421 stig en 44 kusu hann varnarmann ársins. Hassan Whiteside, miðherji Miami Heat, var síðan þriðji með 83 stig þar af fékk hann tvö atkvæði sem varnarmaður ársins. Leonard fer fyrir vörn San Antonio Spurs liðsins sem fékk á sig fæst stig að meðaltali í leik í deildarkeppninni. Liðið fékk á sig þremur stigum færra í leik en næsta lið sem var Utaj Jazz. Tölfræðin sýndi jafnframt að vörn San Antonio Spurs var mun öflugri þegar Kawhi Leonard var á gólfinu en þegar hann sat á bekknum. Kawhi Leonard er aðeins annar leikmaðurinn í sögu NBA sem fær þessi verðlaun tvö ár í röð af þeim sem spila ekki inn í teig. Hinn er Sidney Moncrief hjá Milwaukee Bucks sem var valinn 1982-83 og 1983-84. Þegar Kawhi Leonard var kosinn í fyrra var hann fyrsti maðurinn síðan Ron Artest (2003-04) til að hljóta þessi verðlaun án þess að spila stöðu kraftframherja eða miðherja.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira