Crawford besti sjötti maðurinn í þriðja sinn á ferlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. apríl 2016 15:45 Jamal Crawford. Vísir/Getty
Jamal Crawford, bakvörður Los Angeles Clippers, var í dag valinn besti sjötti maður NBA-deildarinnar í körfubolta en forráðamenn NBA eru farnir að gera upp tímabilið og úthluta verðlaunum fyrir bestu frammistöðuna. Þetta er í þriðja sinn sem Jamal Crawford fær þessi verðlaun en þessi 36 ára gamli leikmaður er elsti maðurinn í sögu NBA til að vera kosinn besti sjötti maðurinn. Jamal Crawford skoraði 14,2 stig og gaf 2,3 stoðsendingar á tímabilinu en hann var annar í deildinni í vítanýtingu, hitti úr 90,4 prósent víta sinna í þessum 79 leikjum sem hann spilaði. Crawford var einnig sá sem skoraði flest stig í fjórða leikhluta af leikmönnum Clippers. Jamal Crawford fékk þessi verðlaun einnig tímabilið 2009-10 (leikmaður Atlanta Hawks) og tímabilið 2013-14 (Los Angeles Clippers). Enginn hefur áður náð því að vera besti sjötti maðurinn í þrígang en þeir Detlef Schrempf, Ricky Pierce og Kevin McHale fengu allir þessir verðlaun tvisvar sinnum á sínum ferli. Jamal Crawford fékk 341 stig og 51 atkvæði í fyrsta sæti frá þeim 130 íþróttafréttamönnum sem fjalla reglulega um deildina og fengu atkvæðarétt í ár. Andre Iguodala hjá Golden State Warriors varð annar með 288 stig og Enes Kanter hjá Oklahoma City endaði í þriðja sæti með 182 stig. Aðeins þeir leikmenn sem koma oftar inn af bekknum en þeir byrja inná koma til greina í kosningunni á besta sjötta manni deildarinnar.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira