Cleveland hvíldi LeBron og tapaði öðrum leiknum í röð Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. febrúar 2016 07:00
Cleveland Cavaliers, topplið austurdeildarinnar í NBA, tapaði öðrum leiknum í röð í nótt þegar liðið lá í valnum á útivelli gegn Washington Wizards, 113-99. Cleveland hvíldi LeBron James í leiknum og átti í raun og veru aldrei séns því Washington náði mest 30 stiga forystu. Toppliðið átti fyrir höndum þrjá leiki á fjórum dögum og ákvað að hvíla sinn besta leikmann á milli leikja eitt og þrjú. Otto Porter Jr. og John Wall voru stigahæstir Washington-liðsins sem er í tíunda sæti austurdeildarinnar og í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Wall gaf að auki þrettán stoðsendingar. Þar sem Toronto var án Kyle Lowry í nótt og tapaði fyrir Detroit heldur Cleveland tveggja sigra forskoti á toppnum. Kyrie Irving var lang stigahæstur Cavaliers með 28 stig. Það var Detroit Pistons sem lagði Toronto að velli í nótt, en það gerði Detroit á heimavelli sínum, 114-101. Þetta er fjórði sigur liðsins í röð eftir að það tapaði fimm í röð þar á undan. Detroit er nú jafnt Chicago og Charlotte í baráttunni um sjöunda sætið. Reggie Jackson var stigahæstur Detroit með 19 stig en miðherjinn magnaði Andre Drummond skoraði 15 stig og tók 18 fráköst. DeMar DeRozan var stigahæstur Toronto með 20 stig. Í spilaranum hér að ofan má sjá tíu flottustu tilþrif næturinnar.Úrslit næturinnar: Washington Wizards - Cleveland Cavaliers 113-99 Atlanta Hawks - Charlotte Hornets 97-76 Detroit Pistons - Toronto Raptors 114-101 Indiana Pacers - Portland Trail Blazers 102-111 Orlando Magic - Philadelphia 76ers 130-116 Dallas Mavericks - Minnesota Timberwolves 128-101 New York Knicks - Miami Heat 81-98Staðan í deildinni.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira