Tónlist

Árslistakvöld Party Zone í 26. skipti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Búast má við miklu fjöri á Paloma.
Búast má við miklu fjöri á Paloma. vísir

Hinn árlegi danstónlistarannál X-ins 977 veður haldinn í 26. skipti á laugardagskvöldið. Þar verða flutt fimmtíu bestu danslög ársins að mati plötusnúða þjóðarinnar í fjögurra tíma útvarpsþætti



Eftir það verður hið árlega árslistakvöld, að þessu sinni á Palóma.  Þar koma fram landsliðsmenn í skífuþeytingum.



Sem fyrr byggir hann á vali um og yfir 50 plötusnúða, þáttastjórnenda, hlustenda og mánaðarlegum PartyZone listum síðasta árs.



„Við munum gera 50 bestu lögunum góð skil ásamt því að fara yfir ýmsa lykilatburði síðasta árs í danstónlistinni. Topplag árslistans verður sett á fóninn rétt fyrir miðnætti,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum kvöldsins.



Það verða Kristján Helgi Stefánsson, Helgi Már Bjarnason og Símon Guðmundsson sem munu flytja listann í beinni útsendingu frá því klukkan 20:00 til miðnættis.



Uppfært 25.1. Hægt er að hlusta á upptöku af seinni hluta þáttarins hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.