Lakers vann annan leikinn í röð Kristinn Páll Teitsson skrifar 2. janúar 2016 11:00 D'Angelo Russell sækir hér í átt að körfu 76ers í nótt. Vísir/getty
Los Angeles Lakers vann annan leik sinn í röð í NBA-deildinni í nótt 93-84 gegn Philadelphia 76ers en þetta var aðeins sjöundi sigurleikur liðsins á þessu tímabili. Kobe Bryant var ekki með Los Angeles Lakers í nótt en hinn 37 árs gamli Bryant fann fyrir eymslum í öxlinni eftir leikjaálagið undanfarnar vikur en þarna mættust tvö lélegustu lið NBA-deildarinnar í vetur. Er þetta í fyrsta sinn í tæpa ellefu mánuði sem Lakers vinnur tvo leiki í röð en Lou Williams fór fyrir liðið Lakers með 24 stig gegn sínum gömlu félögum.McDermott setti fleiri stig en Knicks í fjórða leikhluta í gær en hér setur hann tvö af 13 stigum sínum í leiknum í gær.Vísir/gettyÍ Chicago unnu leikmenn Chicago Bulls 27 stiga sigur á New York Knicks 108-81 en leikmenn Bulls settu einfaldlega í lás í fjórða leikhluta og gerðu út um leikinn. Tókst leikmönnum New York Knicks aðeins að setja átta stig í leikhlutanum en Doug McDermott, leikmaður Chicago Bulls, skoraði fleiri stig (11) en New York Knicks í leikhlutanum. Toronto Raptors tókst sömuleiðis að gera út um leikinn í fjórða leikhluta og vinna tíu stiga sigur eftir að hafa verið átta stigum undir fyrir leikhlutann. Þá bauð Hassan Whiteside upp á tröllatvennu í 24 stiga sigri á Dallas Mavericks í nótt 106-84 en miðherjinn var stigahæsti leikmaður vallarins með 25 stig ásamt því að taka 19 fráköst. Myndband með helstu tilþrifum kvöldsins má sjá hér fyrir neðan en hér má sjá stöðuna í NBA-deildinni.Öll úrslitin í NBA-deildinni í nótt: Washington Wizards 103-91 Orlando Magic Miami Heat 106-82 Dallas Mavericks Toronto Raptors 104-94 Charlotte Hornets Chicago Bulls 108-81 New York Knicks Los Angeles Lakers 93-84 Philadelphia 76ersBestu tilþrif kvöldsins: Leikmenn Dallas áttu engin svör við stórleik Whiteside:
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira