Lífið

Miðarnir á Bieber gætu klárast í dag: "Við erum bara í skýjunum“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Justin Bieber mun gera allt vitlaust hér á landi.
Justin Bieber mun gera allt vitlaust hér á landi. vísir/getty
„Við einfaldlega gætum ekki verið glaðari með hvernig til tókst í morgun,“ segir Ísleifur Þórhallsson tónleikahaldari hjá Senu, en miðasala á aukatónleika Justin Bieber hófst klukkan tíu í morgun.

Það var greinilega mikill skjálfti í Íslendingum þegar hleypt var inn í stafræna röð hjá tix.is. Miðar á fyrri tónleika hans seldust upp á augabragði. Nú eru aðeins örfáir miðar eftir á aukatónleikana. Gróft reiknað, miðað við fjölda miða og verð þeirra, velta einir tónleikar rúmlega 300 milljónum og tvennir þá rúmlega 600.

„Röðin gekk ótrúlega vel og við náðum að sinna öllum sem vildu miða. Nú þegar er orðið uppselt í stúku og það er alveg á hreinu að það verður uppselt á þessa tónleika, það er alveg öruggt,“ segir Ísleifur sem bætir við að aðeins sé spurning hvenær miðarnir klárist.

„Ég gæti vel trúað að það verði orðið uppselt í lok dags, það eru það fáir miðar eftir. Það er alltaf gaman að selja upp á tónleika en okkur leið ekki nægilega vel eftir fyrri miðasöluna. Það er virkilega góð tilfinning að ná að svara algjörlega eftirspurninni. Loksins fær fólk tækifæri til að kaupa miða í rólegheitunum. Við erum bara í skýjunum.“

Ísleifur sagði í samtali við Vísi í morgun að tónleikarnir væru sögulegir og rammi algerlega upp á nýtt hvað hægt sé að gera á Íslandi.

„Nýjar upplýsingar fyrir alla að það sé hægt selja 40 þúsund miða á eina tónleika. Enginn tónleikahaldari á Íslandi hefur látið sér detta í hug að það sé hægt. Þetta eru 12. prósent þjóðarinnar. Þetta er alveg örugglega heimsmet.“

Samkvæmt heimildum fréttastofu mætir fólk á vegum Justin Bieber til landsins strax í febrúar til að skoða aðstæður og hefja undirbúning.


Tengdar fréttir

Miðasalan á Justin Bieber hafin

Miðasalan á aukatónleika Justin Bieber er hafin og hefur verið hleypt inn í stafræna röð í gegnum miðasölukerfi Tix.is. Tónleikarnir fara fram þann 8. september






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.