Tónlist

Ætla að útskýra öll lögin mjög vel

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin Skarkali kemur fram á tónleikum í Hannesarholti í kvöld.
Hljómsveitin Skarkali kemur fram á tónleikum í Hannesarholti í kvöld. Mynd/aðsend
„Það er mikil tilhlökkun innan sveitarinnar. Ég mun útskýra öll lögin mjög vel þar sem að þetta eru jú útgáfutónleikar,“ segir Ingi Bjarni Skúlason, píanóleikari hljómsveitarinnar Skarkala. Sveitin hefur gefið út sína fyrstu plötu og heitir hún einfaldlega Skarkali og verður útgáfunni fagnað með tónleikum í Hannesarholti í Reykjavík.

Auk Inga Bjarna skipa sveitina bassaleikarinn Valdimar Olgeirsson og trommuleikarinn Óskar Kjartansson. Hljómsveitin var stofnuð árið 2013. Áður hafa liðsmenn spilað saman í mörgum hópum við hin ýmsu tilefni eftir að hafa kynnst í Tónlistarskóla FÍH.

„Platan var tekin upp á tveimur dögum í Amsterdam, þetta gekk nokkuð vel. Auðvitað er maður stundum ekki með sjálfum sér í hljóðverinu en þetta hljómar mjög vel og við erum mjög sáttir við plötuna,“ segir Ingi Bjarni spurður út í plötuna.

Á disknum eru níu frumsamin lög í fjölbreyttum djass-útsetningum.  Upptökur fóru fram í Amsterdam í febrúar síðastliðnum þar sem tveir meðlima tríósins stunda tónlistarnám í Hollandi.

Skarkali hefur tvisvar komið fram á Jazzhátíð Reykjavíkur auk þess sem tríóið tók þátt fyrir Íslands hönd í Young Nordic Jazz Comets árið 2013 í Noregi. Sumarið 2014 ferðaðist tríóið til Færeyja og hélt þar fjóra tónleika sem voru hluti af tónleikaröðinni Summartónar.

Útgáfa nýju plötunnar er styrkt af Hljóðritasjóði STEF, Menningarsjóði F.Í.H og Tónskáldasjóði Rásar 2.

Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 20.30 og að þeim loknum gefst tónleikagestum kostur á að kaupa plötuna á sérstöku tónleikaverði. Skarkali kemur fram á fleiri tónleikum í sumar og verður til að mynda á Ísafirði næsta þriðjudag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.