Var grönn og vöðvalítil á Ólympíuleikunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. apríl 2015 06:00 "Ég verð að standa mig og æfa eins og manneskja og reyna að bæta mig ennþá meira. Ég er með sömu væntingar og allir aðrir, held ég,“ segir Eygló Ósk Gústafsdóttir. Hér er hún eftir eitt sundið sitt á ÍM. Fréttablaðið/Stefán
Eygló Ósk Gústafsdóttir er ekki lengur unga og granna sundkonan sem keppti 17 ára gömul á Ólympíuleikunum í London 2012. Þá var hún að ná markmiði sem hún hafði sett sér átta ára gömul en nú þremur árum síðar er hún komin í fremstu röð í heimi. Eygló Ósk bætti eigið Íslands- og Norðurlandamet um hálfa sekúndu í 200 metra baksundi á ÍM 50 um síðustu helgi og daginn eftir bætti hún eigið met í 100 metra baksundi um rúma sekúndu.Þriggja ára bið á enda „Ég er búin að æfa vel og það er farið að skila sér núna. Ég var búin að bíða eftir því í þrjú ár að bæta þetta Norðurlandamet,“ segir Eygló. Það er ógrynni æfinga sem liggur að baki árangri hennar. „Við erum með svona tíu til ellefu æfingar í viku. Við fáum alltaf frí á sunnudögun þannig að það eru æfingar á morgnana og á kvöldin á öllum virkum dögum. Svo er líka æfing á laugardagsmorgnum,“ segir Eygló sem kvartar aðeins yfir morgunæfingunum. „Það er stundum dálítið erfitt að vakna klukkan fimm á morgnana en maður verður að reyna að rífa sig fram úr. Ég er komin með aðeins meiri reynslu á stórmótum og þegar maður fer á þessi stóru mót þá eru allar þessar morgunæfingar þess virði. Þegar maður nær þessum metum og öllum markmiðunum sínum þá er þetta þess virði,“ segir Eygló og hún hefur greinilega bætt á sig vöðvamassa.Var rosalega grönn og vöðvalítil „Við höfum verið að lyfta meira og þjálfarinn breytti aðeins sundæfingaprógramminu líka og það er að spila inn í. Ég var rosalega grönn og vöðvalítil þegar ég var á Ólympíuleikunum en ég er búin að bæta það. Ég er nokkrum kílóum þyngri en ég var á Ólympíuleikunum, og ég var alveg rosalega grönn alla mína æsku,“ segir Eygló Ósk. „Það er eins erfitt að byggja kílóin upp og að losna við þau. Þetta er ekkert sem gerist á stuttum tíma heldur eitthvað sem maður er búinn að vera að vinna að lengi,“ segir Eygló sem er að klára stúdentinn. „Ég er búin að taka menntaskólann í rólegheitunum. Ég hef ekki verið að flýta mér of mikið og mér finnst það fínt því þá get ég einbeitt mér meira að sundinu,“ segir Eygló en hún er ekki búin að ákveða að fara út í skóla þrátt fyrir tilboð.Tekur sér eins árs frí frá skóla „Ég ætla að taka ár í frí frá skóla fyrir Ólympíuleikana. Ég ætla bara að vera að vinna fimmtíu prósent og æfa svo á fullu,“ segir Eygló sem er ekkert búin að ákveða um framtíðina nema að hún ætlar sér stóra hluti á Ólympíuleikunum í Ríó 2016. Eygló segir að það hafi tekið tíma að endurstilla sig eftir ævintýrið á leikunum í London 2012. „Ég var þá búin að ná markmiðunum mínum og þá var ég minna ákveðin og svona. Núna er þetta allt að koma aftur.“ Árangurinn um helgina var magnaður og sundkonan sjálf er líka sátt. „Ég var í skýjunum eftir helgina sem og eftir danska mótið um daginn. Þetta er alveg geðveikt gaman. Ég er mjög sátt með stöðuna eins og er,“ segir Eygló en verðlaunaði hún sjálfa sig ekkert eftir svona magnaða frammistöðu? „Ég er að fara í sumarbústað um helgina með fjölskyldunni minni og fæ að slaka á. Ég fékk líka að klára páskaeggið sem ég fékk ekki að klára um síðustu helgi,“ segir hún hlæjandi. „Stærstu verðlaunin eru samt að hafa náð þessu meti. Það er líka alltaf jafn gaman að fá svona hlýlegar kveðjur frá öllum,“ segir Eygló að lokum.
Sund Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Enski boltinn Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Fleiri fréttir „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM fyrir fullri höll Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar „Við þurfum annan titil“ Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum „Við vorum yfirspenntar“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Sjá meira