Heilsa

Edik til allra nota

Rikka skrifar
Edik er bæði hægt að nota sem snyrtivöru og í heimilisþrifin.
Edik er bæði hægt að nota sem snyrtivöru og í heimilisþrifin. Vísir/Getty
Það er löngum vitað að edik er til margra hluta nýtilegt og ekki einungis í eldhúsinu. Edik er til dæmis upplagt að nota við heimilisþrifin en einnig til að mýkja húðina, auka endingu naglalakksins og eyða táfýlu.

Við á Lífinu erum búin að taka saman nokkur frábær ráð til að nota edikið enn frekar.

Mýkir húðina

Settu 200 ml af ediki í baðið og njóttu í 15 mínútur, þetta mýkir húðina og heldur sýrustiginu í jafnvægi.

Andlitsvatn

Edik er alveg prýðilegt andlitsvatn. Það hefur kannski ekki besta ilminn en áhrifin eru góð því edikið hjálpar til við að hreinsa burt dauðar húðfrumur og minnka svitaholur.

Glansandi lokkar

Blandaðu tveimur matskeiðum af ediki við 200 millilítra af vatni og skolaðu hárið upp úr því eftir að þú hefur þvegið það með sjampói. Skolaðu ediksblönduna úr og settu í hárið létta næringu. Hárið verður glansandi fínt og fallegt.

Flösuna frá

Blandaðu teskeið af ediki í sjampóið þitt og notaðu reglulega ef þú ert að berjast við flösu. Edikið jafnar sýrustig húðarinnar og kemur jafnvægi á hársvörðinn. Einnig er hægt að blanda saman jöfnu hlutfalli af ediki og vatni og nudda blöndunni í hársvörðinn áður en að þú þværð á þér hárið. Hvort tveggja ætti að fæla flösuna frá.

Auktu endingu naglalakksins

Vættu bómull með ediki og renndu yfir neglurnar, láttu þær þorna og naglalakkaðu þig eins og þú ert vön að gera. Edikið tekur burt alla yfirborðsfitu af nöglunum og gerir það að verkum að lakkið helst lengur.

Burt með táfýluna

Settu 200 ml á móti hverjum lítra af vatni í fótabaðið til að losna við óæskilega táfýlu. Njóttu baðsins í 15 mínútur og gættu þess að þerra tærnar vel áður en þú ferð aftur í sokkana.








×