Lífið

Vampírubörn úti um allt hús

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Freyja, Fía, Þórdís og Tristan tóku forskot á sæluna og hjálpuðu Kristínu að undirbúa Drakúlasmiðjuna.
Freyja, Fía, Þórdís og Tristan tóku forskot á sæluna og hjálpuðu Kristínu að undirbúa Drakúlasmiðjuna. vísir/valli

Í dag er heimsdagur barna haldinn í ellefta skipti á Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar. Á heimsdegi barna gefst börnum og fylgdarmönnum þeirra tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum og spennandi listsmiðjum. Ein af þeim smiðjum sem verða í boði er Drakúlasmiðja í Gerðubergi undir stjórn Kristínar Þóru Guðbjartsdóttur.

„Smiðjan gengur út á að börnin gera búninga úr efnum sem auðvelt er að finna til heima. Við notum svarta plastpoka, kreppappír og gjafaborða til að búa til skikkjuna. Svo gera þau vígtennur úr pappír og að lokum leðurblöku sem þau setja á grillpinna. Þau gera þetta alveg sjálf. Ég afhendi þeim bara efnið og leiðbeini.“ 

Kristín var síðast með Drakúlasmiðju fyrir fjórum árum og var hún mjög vinsæl. „Það var handagangur í öskjunni, ansi líflegt og fjörugt. Það voru litlar vampírur á sveimi um alla ganga enda gerðum við 150 til 200 búninga á þremur tímum.“

Kristín segist sjálf vera norn og hafa mikinn áhuga á því sem er dökkt, dularfullt og ógnvekjandi. Hún segir mörg börn deila áhuga hennar.

„Þau dýrka þetta. Þegar maður er að mála þau í framan og setja blóð verða þau svaka spennt. Þegar ég var að mála þau fyrir myndatökuna núna bað eitt barnið um bitför á hálsinn,“ segir hún hlæjandi.

Í ár verður sú breyting á heimsdegi barna að auk listsmiðja í Gerðubergi verður dagskráin í boði á fleiri starfsstöðum Borgarbókasafnsins; í Spönginni, Kringlunni og Sólheimum. Hægt er að sjá dagskrána á vef Borgarbókasafnsins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.