Tónlist

Spilaði Ég heyri raddir

Freyr Bjarnason skrifar
Steve Hackett spilaði með Todmobile.
Steve Hackett spilaði með Todmobile. Vísir/Ernir
Tónleikar Steves Hackett, fyrrverandi gítarleikara bresku hljómsveitarinnar Genesis, og Todmobile gengu eins og í sögu um helgina.

Um tvenna tónleika var að ræða. Þeir fyrri voru í Hörpu á föstudagskvöld en þeir síðari í Hofi á Akureyri kvöldið eftir. Á tónleikunum spilaði Hackett með í nokkrum Todmobile-lögum sem höfðu verið fyrir fram æfð, en í Hofi spilaði hann óundirbúið í laginu Ég heyri raddir og fórst það vel úr hendi.

Sjá einnig:Myndi Phil Collins fíla þetta?

Eftir báða tónleikana var kappinn svo duglegur við að árita gamlar plötur með Genesis og sólóplötur sem aðdáendur hans höfðu meðferðis.

Hér að neðan má heyra lagið Ég heyri raddir og sjá glæsilegt myndband við það.


Tengdar fréttir

Myndi Phil Collins fíla þetta?

Gítarleikarinn Steve Hackett er staddur hér landi til þess að koma fram á tónleikum með Todmobile. Hann er best þekktur fyrir að hafa verið meðlimur í Genesis og er mikill áhrifavaldur í gítarleik.

Saumar út á milli tónleika

Andrea Gylfadóttir söngkona hefur haft í nógu að snúast að undanförnu fyrir stórtónleika Todmobile um næstu helgi. Mest allur tími hennar undanfarið hefur farið í æfingar. Þess á milli situr hún og saumar út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.