Lífið

Lítur vel út með aukatónleika Bieber

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Miðalausir Bieber-aðdáendur þurfa ekki að örvænta alveg strax.
Miðalausir Bieber-aðdáendur þurfa ekki að örvænta alveg strax. vísir/getty
Töluverðar líkur eru nú taldar á því að poppstjarnan Justin Bieber muni halda aukatónleika á Íslandi í ljósi gríðarlegrar eftirspurnar. Heimildir fréttastofu herma að þeir færu fram fimmtudaginn 8. september, degi fyrir tónleikana sem seldist upp á örskotsstundu um helgina.

Sjá einnig: Uppselt á Bieber: Seldist upp á hálftíma

Í samtali við Vísi á laugardag sagði Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu, að það yrði að teljast langsótt að Bieber gæti haldið hér aukatónleika og að ekkert væri hægt að gera í slíkum tónleikum fyrr en í janúar –því „það eru allir komnir í jólafrí þarna úti,“ eins og hann orðaði það þá.

„En út af þessari sprengju þá fórum við í þetta um helgina, náðum sambandi við hann úti og, ótrúlegt en satt, þá lítur þetta bara ágætlega út með aukatónleika,“ segir Ísleifur.

Hann slær þó þann varnagla að ekki sé hægt að lofa neinu á þessari stundu en hann segist þó vongóður um að þetta hafist.

Sjá einnig: Tix.is um Bieber-miðasöluna: Of hratt hleypt inn í röðina

„Við erum bara á fleygiferð að reyna að klára þetta sem allra fyrst svo að megi staðfesta þetta á næstunni. Þetta lítur vel út og við erum vongóð um að þetta muni takast,“ segir Ísleifur. Þrátt fyrir að hann geti ekki staðfest við Vísi hvenær (mögulegir) aukatónleikar færu fram herma heimildir fréttastofu að þeir færu fram daginn áður, fimmtudaginn 8. september.

Vísir hefur áður greint frá því að Bieber muni dvelja nokkuð lengi hér á landi. Bieber er þekktur fyrir að æfa af krafti fyrir tónleika sína. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur Kórinn verið leigður út í lengri tíma en þegar Justin Timberlake heimsótti Ísland í fyrra.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.