Matur

Grilluð nautalund í sveppa-, beikon- og sinnepskryddhjúp

Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson gefur gómsætar uppskriftir á Stöð 2 fram að jólum. Hér gefur hann uppskrift að flottri steik á áramótaborðið.

Grilluð nautalund í sveppa-, beikon- og sinnepskryddhjúp 

800 g fullhreinsuð nautalund 

1 bréf beikon 

8 stk. portóbellósveppir

½ hvítlauksrif (fínt rifið)

½ búnt steinselja (fínt skorin)

3 msk. grófkornasinnep 

1 msk. tómatpurée

1 msk. maplesýróp

olía til steikingar 

svartur pipar úr kvörn 

sjávarsalt 



Skerið beikonið smátt niður og steikið þar til það er orðið stökkt, hellið því svo á disk með eldhúsrúllu til að þerra fituna í burtu. Skerið portóbellósveppina í þunnar sneiðar og steikið á pönnu, þegar sveppirnir eru hálf steiktir eu hvítlauknum bætt út á pönnuna og hann brúnaður með. Slökkvið á hellunni og blandið öllu nema nautalundinni saman við og smakkið til með saltinu og piparnum. Hitið pönnu með olíu og brúnið nautalundina allan hringinn setjið nautalundina í eldfast mót. Smyrjið þykku lagi af hjúpnum þétt yfir lundina. Setjið lundina inn í 100 gráðu heitan ofninn í 40 mín eða þar til hún hefur náð 54 gráðum í kjarnhita.

Rauðvínssoðgljái 

3 stk. hvítir laukar 

6 hvítlauksgeirar

olía til steikingar 

½ bréf timian 

4 sellerístilkar 

50 ml balsamik edik 

50 ml maple sýróp

½ flaska rauðvín 

1 líter nautasoð 

150 g smjör 

½ sítróna (bara safinn)

fínt salt (má sleppa)



Skrælið og skerið laukinn í grófa bita , hitið pott með olíu í og brúnið laukinn þar til hann er orðinn mjúkur. Bætið selleríinu, timianinu, maple sýrópinu í og balsamik edikinu út í. Sjóðið niður um ca. 2/3 og bætið svo rauðvíninu út í og sjóðið það niður um helming. Hellið nautasoðinu út í og sjóðið niður um helming eða þar til að sósan er farin að þykkna. Sigtið sósuna yfir í annan pott. Þegar þetta er búið er sósan klár og geymist í kæli í 7- 10 daga. Í lokin áður en að þið notið hana þá þarf að hita hana upp og hræra smjörinu út í. Smakkið til með sítrónusafanum og smá fínu salti og meira rauðvíni ef þurfa þykir.

Steiktar kartöflur og perlulaukur með estragoni 

800 g soðnar kartöflur 

½ poki rauður perlulaukur(skrældur og gróft skorinn)

¼ bréf estragon 

1 msk. smjör 

ólífuolía til steikingar

sjávarsalt 

svartur pipar 



Hitið pönnu með ólífuolíu. Skerið kartöflurnar í fernt og setið í pönnuna og steikið í ca 4 mín og bætið svo rauða perlulauknum og smjörinu út á pönnuna og steikið þar til allt er orðið gyllt og fallegt. Bætið estragoninu út á pönnuna í lokin og smakkið allt til með saltinu og piparnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.