Lífið

Fagna degi íslenskrar tungu í tuttugasta sinn

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Hjördís Erna Sigurðardóttir er mikill áhugamaður um orð og finnst gaman að safna orðum um alls konar hluti.
Hjördís Erna Sigurðardóttir er mikill áhugamaður um orð og finnst gaman að safna orðum um alls konar hluti. Fréttablaðið/Vilhelm
Mikil hátíðardagskrá er víða um land í dag í tilefni dags íslenskrar tungu sem nú er haldinn í tuttugasta sinn, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar.

„Þetta er í þriðja sinn sem ég er með þetta verkefni ásamt Jóhannesi Bjarna Sigtryggssyni og höfum við unnið með menntamálaráðuneytinu. Í ár þá ákváðum við að prufa dálítið nýtt og hefur dagurinn ákveðið þema í ár, veðurorð. Ég er sjálf mikill áhugamaður um orð og finnst gaman að safna orðum um alls konar hluti,“ segir Hjördís Erna Sigurðardóttir, sagnfræðingur og skipuleggjandi hátíðardagskrárinnar.

Í ár verður dagurinn haldinn hátíðlegur með hátíðardagskrá á vegum mennta- og menningarmálaráðherra í bókasafni Mosfellsbæjar. Þar að auki verður dagskrá í Árnagarði Háskóla Íslands á vegum Mímis, félags stúdenta í íslenskum fræðum, málþing í Hallgrímskirkju um Viðeyjarbiblíu, fyrsti áfangi Stóru upplestrarkeppninnar og dagskrá í Háskólanum á Akureyri svo fátt eitt sé nefnt. Þar að auki verður dagskrá í skólum og á bókasöfnum víða um land.

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra mun flytja ávarp í Mosfellsbæ auk þess sem verðlaunahafarnir tveir, þeir sem hljóta Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og Sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu, verða kynntir og munu flytja ávarp.

Orðaforði Íslendinga er áberandi í hátíðardagskránni. Auk þess sem veðurorðin eru þema dagsins munu Samtökin '78 einnig fjalla um mikilvægi hinsegin orðaforða í Árnagarði.

Hátíðarhaldarar óskuðu eftir því að Íslendingar sendu þeim sín uppáhaldsveðurorð og verða nokkrum þeirra gerð skil. „Þó nokkuð margir komu með skemmtileg veðurorð, sum mjög fáheyrð. Þau eru oft landshlutaskyld og merking þeirra líka. Þetta var bara mjög skemmtilegt að fá að kasta þessu út í samfélagið og fá svona viðbrögð því íslenskan væri fátækleg ef við hefðum bara þessa stóru hatta, gott veður og vont veður. Þá myndi vanta falleg blæ- og tilbrigðaorð um allt þar á milli,“ segir Hjördís.

„Við megum ekki týna uppáhaldsorðum okkar eins og til dæmis orðinu hundslappadrífa, það væri þyngra en tárum taki.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.