Lífið

Gekk út í miðjum umræðum í beinni útsendingu á RÚV

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Edda Sif var sem betur fer með annan viðmælanda sem þurfti ekki að yfirgefa útsendinguna.
Edda Sif var sem betur fer með annan viðmælanda sem þurfti ekki að yfirgefa útsendinguna. Vísir/Skjáskot
Ætli það sé ekki ein versta martröð fréttamanns að viðmælandi gangi út úr viðtali í því miðju? Það henti Eddu Sif Pálsdóttur íþróttafréttamann í gær þegar viðmælandi hennar, eða raunar álitsgjafi, gekk út úr miðjum umræðum um Norðurlandamótið í fimleikum. RÚV var með beina útsendingu frá mótinu sem haldið var í Vodafone-höllinni í gær.

„Ég hafði séð mann út undan mér sem dró höndina ítrekað hratt yfir hálsinn á sér eins og til að gefa mér merki um að drepa mig í snarhasti. Stuttu seinna verður Sólveig vör við þetta líka eins og sést mjög skemmtilega á myndbandinu,“ segir Edda Sif Pálsdóttir en myndband af atvikinu hefur verið birt á YouTube.

Stjarnan fyrir lokagreinina í gær en liðið varð Norðurlandameistari á mótinu sem var til umræðu.vísir/frjálsíþróttasambandið
Kellan ekki mætt og allir stressaðir

Í myndbandinu sést hvernig Sólveig lítur á úrið sitt eftir að hafa náð augnsambandi við einhvern handan myndavélarinnar. Sólveig þessi er Jónsdóttir en hún er reynd fimleikakona og átti sjálf að dæma leik á sama tíma og á viðtalinu stóð.

„Mér þykir voðalega leiðinlegt að yfirgefa ykkur en ég á að dæma gólfið og það er eftir eina mínútu. Það eru allir orðnir mjög stressaðir að kellan sé ekki mætt,“ segir Sólveig í myndbandinu og bregður sér frá.

„Og ég er nokkuð viss um að þetta hafi verið í fyrsta skipti sem gestur yfirgefur mig í miðju spjalli. Ég var sem betur fer með annan aðeins tryggari sem kláraði þetta með mér og kann ég henni bestu þakkir fyrir það. Þetta hefði annars orðið ansi óþægilegt, bæði fyrir mig og áhorfendur,“ segir Edda Sif.

Myndbandið má nálgast hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.