Leikjavísir

Hvað gerir þig S.P.E.C.I.A.L?

Samúel Karl Ólason skrifar
Úr The Wanderer stiklu Bethesda.
Úr The Wanderer stiklu Bethesda.
Bráðum verður mögulegt að telja dagana í að Fallout 4 komi út á fingrunum. Mikil eftirspurn ríkir eftir leiknum, en Bethesda Softworks búast við því að útgáfa leiksins verði einhver sú stærsta sem fyrirtækið hefur gert.

Bethesda hafa verið duglegir við að birta skemmtileg og fræðandi myndbönd á Youtuberás fyrirtækisins. Þar á meðal hafa verið birt myndbönd sem útskýra hvernig karaktersköpun leiksins virkar.

Þó hefur leikin stikla vakið mesta athygli, en öll myndböndin má sjá hér að neðan.

The Wanderer Styrkur Skynjun Þrek Persónutöfrar Gáfur Fimleiki Heppni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×