Tónlist

Enginn Bieber í nýju tónlistarmyndbandi Bieber

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Dömurnar sem fram koma í myndbandinu.
Dömurnar sem fram koma í myndbandinu.
Kanadíski poppsöngvarinn Justin Bieber hefur sent frá sér annað lag af komandi breiðskífu en lagið kallast Sorry. Platan hefur fengið nafnið Purpose og kemur út þann 13. nóvember næstkomandi. 

Lagið vann Bieber ásamt Skrillex og Blood Diamonds en þetta er annað lagið sem hann vinnur með þeim fyrrnefnda á árinu. Skrillex myndar nefnilega dúettinn Jack Ü ásamt Diplo en Jack Ü gaf út lagið Where are you now? fyrr á árinu þar sem Bieber sá um sönginn.

Myndbandið við lagið inniheldur engin tæki eða græjur heldur aðeins fjölda stúlkna að dansa við það hver á sinn hátt. Ekkert fer fyrir íslenskum áhrifum í laginu eða myndbandinu en sem kunnugt er heimsótti tónlistarmaðurinn Ísland í síðasta mánuði.

Myndbandið við Sorry má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Bieber á nærbuxunum í Fjaðrárgljúfri

Justin Bieber er heldur betur ennþá á landinu en hann birti rétt í þessu fallega mynd af sér á Calvin Klein nærbuxunum einum í Fjaðrárgljúfri við Kirkjubæjarklaustur.

Bieber tjáir sig um nektarmyndirnar

Poppstjarnan segir að honum finnist hann hafa verið misnotaður þegar nektarmyndir af honum voru birtar í mörgum af stærstu fréttamiðlum heims.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.