Tónlist

Herra Hnetusmjör sendir frá sér myndband við Selfie

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Myndbandið er stórgott.
Myndbandið er stórgott.
Herra Hnetusmjör hefur sent frá sér tónlistarmyndband við lagið Selfie. Lagið er að finna á frumburði hans sem nefnist Flottur Skrákur. Þetta er annað myndbandið sem rapparinn sendir frá sér en hið fyrra var við lagið Ekkert vesen.

„Líkt og öll önnur lög á plötunni er það pródúsað af Joe Fraizer. Myndbandið er skotið yfir eina helgi og við þökkum öllum sem komu að því, á einn eða annan hátt, kærlega fyrir,“ segir Herra Hnetusmjör.

Upptaka og myndvinnsla var í höndum Árna Beinteins en að sögn Herrans er hann algjört „wizkid“ þegar kemur að kvikmyndum og myndböndum.

Myndbandið má sjá hér að neðan. Plötuna Flottur Skrákur má nálgast á flotturskrakur.com og að auki er hægt að streyma henni á Spotify.




Tengdar fréttir

Herra Hnetusmjör heldur útgáfupartí

Í dag heldur Herra Hnetusmjör upp á 19 ára afmælið sitt en í tilefni dagsins ætlar hann að gefa út sína fyrstu breiðskífu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.