Lífið

Hótar að lögsækja blöð sem birtu nektarmyndirnar af Bieber

Atli Ísleifsson skrifar
Lögmenn Bieber segja birtingu myndanna skýrt brot á rétti hans til einkalífs.
Lögmenn Bieber segja birtingu myndanna skýrt brot á rétti hans til einkalífs. Vísir/AFP
Lögmenn kanadíska söngvarans Justin Bieber hafa hótað þeim blöðum málsókn sem hafa birt myndir af söngvaranum allsberum þegar hann var í fríi í Bora Bora í Suður-Kyrrahafi fyrir skemmstu.

Hollywood Reporter greinir frá því að lögmenn Bieber hafi sent bréf á ritstjórn New York Daily News, sem fyrst birtu myndirnar, þar sem þess var krafist að myndirnar yrðu fjarlægðar án tafar.

Bréfið var sent skömmu eftir birtingu síðdegis á miðvikudaginn, en enn má þó finna myndirnar á heimasíðu blaðsins.

Í bréfinu er staðfest að um raunverulega sé um Bieber að ræða, en vangaveltur hafa verið uppi um að myndirnar hafi verið breyttar þannig að maðurinn á myndinni liti út eins og Bieber.

Lögmenn Bieber segja birtingu myndanna skýrt brot á rétti hans til einkalífs og fleiru.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.