Bíó og sjónvarp

Disney birtir sýnishorn úr nýrri kvikmynd um Móglí

Atli Ísleifsson skrifar
Kvikmyndin verður frumsýnd næsta vor.
Kvikmyndin verður frumsýnd næsta vor.
Disney hefur birt sýnishorn úr væntanlegri kvikmynd sinni sem byggir Skógarlífi, sögu Rudyard Kipling um drenginn Móglí.

Í sýnishorninu má hlýða á hása rödd Scarlett Johansson sem talar fyrir eiturslönguna Kaa, en í myndinni fer Bill Murray með rödd Baloo, Ben Kingsley með rödd Bakírs, Idris Elba með rödd Shere Khan og Christopher Walken með rödd King Louie. Neel Sethi fer með hlutverk Móglí.

Jon Favreau, leikstjóri Iron Man, leikstýrir myndinni sem verður frumsýnd næsta vor.

Disney hefur á síðustu árum endurgert fjölda klassískra mynda, þar á meðal um Þyrnirós og Öskubusku. Á næsta ári verður jafnframt ný útgáfa af Fríðu og Dýrinu frumsýnd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×