Sport

Eþíópískur sigur í 5000 metra hlaupinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þrefaldur sigur þeirra eþíópísku.
Þrefaldur sigur þeirra eþíópísku. Vísir/getty
Eþíópíska hlaupakonan Almaz Ayana var í dag heimsmeistari í 5000 metra hlaupi á heimsmeistaramótinu í Peking.

Hún bætti nýtt heimsmeistaramótsmet þegar hún kom í mark á tímanum 14:26,83. Senbera Teferi hafnaði í öðru sæti og Genzebe Dibaba í því þriðja en allar eru þær frá Eþíópíu.

Þá vann Asbel Kiprop 1500 metra hlaup karla þegar hann kom í mark á tímanum 3:34,40 en hann átti magnaðan endasprett sem skilaði honum gullinu.

Elijah Motonei Manangoi, frá Kenía, hafnaði í öðru sæti og Abdalaati Iguider, frá Marokkó, lenti í þriðja sætinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×