Lífið

Drengur Snorra og Heiðu fæddist fyrir tímann

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Heiða og Snorri eignuðust dreng fyrir tímann.
Heiða og Snorri eignuðust dreng fyrir tímann. Vísir

Snorri Snorrason og Heiða Ólafsdóttir, betur þekkt sem Snorri og Heiða í Idolinu, eignuðust son í vikunni. Heiða varð í öðru sæti í annarri þáttaröð af Idol Stjörnuleit en Snorri vann þá þriðju.

Drengnum þeirra lá á að koma í heiminn en hann fæddist sjö vikum fyrir tímann. Frá þessu greinir Snorri á Facebook síðu sinni og birtir myndir af litla stráknum sínum þar sem hann dvelst á vökudeild. Verður hann þar næstu vikur en að sögn Snorra hefur sonurinn staðið sig vel síðan hann fæddist.

„Þessum fallega dreng lá svo sannarlega á að komast í heiminn. Hann mætti eftir akkurat 33 vikna meðgöngu á miðvikudaginn síðasta kl.19:37 og kom okkur svo sannarlega á óvart. Hann er svakalega duglegur á vökudeildinni þar sem hann mun dvelja næstu vikur og læra á þennan nýja óvænta stað. Við foreldrarnir gerum ekki annað en dást að þessari fullkomnu veru.“

Heiða og Snorri hafa verið saman í um það bil eitt og hálft ár. Færslu Snorra má sjá hér að neðan.

Þessum fallega dreng lá svo sannarlega á að komast í heiminn. Hann mætti eftir akkurat 33 vikna meðgöngu á miðvikudaginn...

Posted by Snorri Snorrason on Sunday, August 30, 2015

Tengdar fréttir

Ástin blómstraði 2014: Pör ársins

Það er fátt fallegra en að verða vitni að því þegar tvær manneskjur fella hugi saman og nóg var af því á árinu sem er að líða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.