Lífið

Sumarlífið: Ósk ferðast með hugaraflinu

Sumarlífið kíkti á síðasta Bazaar sumarsins á Bernhöftstorfunni, en sá var tileinkaður list.

Bazaarinn er búinn að vera í gangi í allt sumar og hefur nú þegar verið ákveðið að hann muni koma til með að vera opnaður að ári með sama sniði og skemmtilegum þemum fyrir hvern markað.

Veitingarstaðurinn Torfan sá fólki fyrir drykkjum og mat að venju og DJ Thelma and Louise þeyttu skífum yfir daginn.  Ósk prófaði svo aldeilis skemmtilega græju sem tveir ungir frumkvöðlar voru með til sýnis. Græjan stjórnast af hugarorku og fer þannig áfram, til hægri eða vinstri eða stendur í stað. Ósk byrjaði illa en óx svo ásmegin...






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.