Lífið

Hjólinu stolið daginn fyrir WOW Cyclothon: „Ég held að þjófurinn hafi verið að elta hópinn“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Egill mun taka þátt í keppninni, þrátt fyrir allt.
Egill mun taka þátt í keppninni, þrátt fyrir allt.
„Hjólinu var stolið hér fyrir utan höfuðstöðvar WOW,“ segir Egill Reynisson, sem ætlar sér að taka þátt í WOW Cyclothon hjólreiðakeppninni en Egill er starfsmaður hjá flugfélaginu og keppir því fyrir lið WOW.

„Við skildum hjólin eftir í kannski hálfa mínútu og þegar við komum til baka var mitt farið. Það var einnig reynt að stela öðru hjóli frá einum í liðinu. Þetta var greinilega vel skipulagt og ég held að þjófurinn hafi verið að elta hópinn til þess að bíða eftir tækifærinu.“

WOW Cyclothon er orðinn stærsti einstaki hjólreiðaviðburður á Íslandi en fjöldi þátttakenda í ár er rúmlega tvöfalt meiri en í fyrra.  

Keppnin er nú haldin í fjórða sinn og eru keppendur yfir þúsund talsins í 116 liðum.  Í keppninni verður hjólað með boðsveitarformi hringinn í kringum Ísland, um Hvalfjörð og yfir Öxi, á innan við 72 tímum.

Þúsund keppendur

Lið Hjólakrafts sem keppa í eigin flokki munu leggja af stað í kvöld kl. 18 í kvöld frá Laugardalsvelli.

„Ég fór og tilkynnti um þjófnaðinn í morgun, en ég gat alveg séð að það var nóg að gera hjá þeim, og sérstaklega að skrá skýrslur um horfin reiðhjól.“

Egill segir að hjólið sé hálfs milljóna króna virði en hann hafði gert ákveðnar breytingar á því.

„Ég ætlaði að vera með þetta hjól og annað og verð því alveg með hjól í keppninni. Við reynum einnig að sameinast með hjól, að hluta til.“

Þessu frábæra hjóli var stolið frá mér í dag. Enn verra er að ég ætlaði að nota það að hluta í WOW Cyclothon sem byrjar...

Posted by Egill Reynisson on 22. júní 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.