Íslenski boltinn

Dagný í Selfoss

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dagný kemur til með að styrkja lið Selfoss gríðarlega.
Dagný kemur til með að styrkja lið Selfoss gríðarlega. vísir/daníel
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir er gengin á ný í raðir Selfoss og mun spila með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Sunnlenska.is greinir frá þessu.

Dagný varð þýskur meistari með Bayern München á dögunum og til stóð að hún myndi skrifa undir samning við lið í bandarísku atvinnumannadeildinni. Hlutirnir breyttust hins vegar fljótt en liðin í bandarísku deildinni voru ósátt að Dagný þyrfti ekki að fara í gegnum formlegt valferli eins og aðrir leikmenn.

Óvissan heillaði ekki og Dagný ákvað því að snúa aftur til Selfoss sem hún lék með síðasta sumar.

"Þeir sem eru yfir deildinni buðu mér að fara í gegnum lotterí, þar sem liðið í níunda sæti fengi níu kúlur í pottinum, liðið í áttunda sæti átta kúlur og svo framvegis. Svo yrði dregið um það í hvaða lið ég færi og ég þyrfti að vera þar í eitt og hálft ár. Ég var ekki tilbúin í það því ég vildi vita í hvaða lið ég væri að fara," sagði Dagný í samtali við Sunnlenska.is.

„Þetta kom í ljós klukkan tíu í gærkvöldi og ég svaf ekkert í nótt. Ég var búin að segja nei við öll liðin á Íslandi, í Þýskalandi og eitt lið í Svíþjóð. Ég hringdi í Gunna [Selfossþjálfara] í gærkvöldi og spurði hvort ég mætti koma í Selfoss því mig langaði til þess að spila fótbolta.

„Ég er ennþá atvinnumaður þó að ég sé hérna, ég veit ekki hvert næsta skref verður, hvort ég fer út í júlíglugganum eða á næsta ári. En ég var að minnsta kosti ekki tilbúin til þess að spila ekkert þangað til 15. júlí.

„Ég veit að hverju ég geng á Selfossi, þetta er einn af toppklúbbunum á Íslandi með toppstelpum og frábærri aðstöðu og Gunni er toppþjálfari og hvernig hugsað er um liðið er frábært. Svo verður bara að koma í ljós seinna í sumar hvort ég fer eitthvað annað í júlíglugganum."

Selfoss tapaði 2-0 fyrir Fylki í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í gær og því er Dagný kærkomin viðbót við liðið.


Tengdar fréttir

Dagný þýskur meistari með Bayern

Dagný Brynjarsdóttir og stöllur hennar í Bayern München eru þýskir deildarmeistarar í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á SGS Essen í dag. Wolfsburg tapaði stigum og því Bayern meistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×