Heilsa

Listaverk á brjóstunum

sigga dögg skrifar
Vísir/Skjáskot
Leikkonan og leikstýran Angelina Jolie komst í heimspressuna þegar hún greindi frá ákvörðun sinni að gangast undir tvöfalt brjóstnám í kjölfar þess að læknar greindu henni frá auknum líkum þess að hún myndi fá brjóstakrabbamein sem gæti dregið hana til dauða líkt og hafði gerst fyrir hennar móður.

Brjóstakrabbamein  er það krabbamein sem er algengast meðal kvenna, samkvæmt vefnum Brjóstakrabbamein.is. Það er bæði mikilvægt að þreifa sjálf og fara á leitarstöð krabbameins og fá þar faglega þreifingu.

Vísir/Skjáskot
Brjóstnám getur verið þarft fyrir sumar konur en þá er mismikið af brjóstinu fjarlægt og sumar kjósa í kjölfarið að láta endurbyggja brjóstið eða endurmóta brjóstið, og aðrar ekki.

Nú hafa margir sérfræðingar í húðflúri sérhæft sig í að breyta brjósti og örum eftir skurðinn í listaverk.

Vísir/Skjáskot
Fyrir fleiri hugmyndir um hvernig húðflúr mætti velja til að prýða brjóstkassann, hylja eða prýða örið og brjóstið er urmull af tillögum á pinterest svo hver og ein ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Þú þarft ekki að fara í endurbyggingu til að nýta þér húðflúr og getur verið prýði af því að skreyta líkamann.

Vísir/Skjáskot
Hér má sjá brjóst fljótt eftir uppskurð og á þau vantar geirvörtur og örin eru sýnileg.

Vísir/Skjáskot
Hér má sjá hvað hægt er að gera á einum degi með aðstoð húðflúrslistaverks








×