Tónlist

Söng Pulp um eiginkonu Varoufakis í Common People?

Atli Ísleifsson skrifar
Jarvis Cocker hefur aldrei greint opinberlega frá því hverja hann syngur um í laginu.
Jarvis Cocker hefur aldrei greint opinberlega frá því hverja hann syngur um í laginu. Vísir/EPA/AFP
Gríska blaðið Athens Voice hefur greint frá því að Danae Stratou, eiginkona gríska fjármálaráðherrans Yanis Varoufakis, kunni að vera konan sem Jarvis Cocker og félagar hans í sveitinni Pulp sungu um í lagi þeirra Common People.

Stratou stundaði nám við St. Martins College of Art and Design á árunum 1983 til 1988, en Cocker stundaði nám við skólann á sama tíma.

Árið 2013 greindi Cocker frá því að hann hafi kynnst grísku stúlkunni sem sungið er um í laginu þegar allir nemendur skólans voru látnir stunda nám í annarri aðalgrein á tveggja vikna tímabili.

Síðar sagði Cocker frá því að hafa átt samtal við stúlkuna sem á að hafa sagst „vilja flytja til Hackley og lifa eins og alþýðufólk.“ Þetta hafi hann notað sem grunn þegar hann samdi lagið.

Cocker hefur aldrei greint opinberlega frá því hverja hann syngur um í laginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.