Íslenski boltinn

Sigurður Óli dæmir hjá Stjörnunni í kvöld

Sigurður Óli Þórleifsson.
Sigurður Óli Þórleifsson. Vísir/Valli
Sigurður Óli Þórleifsson verður með flautu en ekki flagg í kvöld þegar Stjarnan tekur á móti Breiðabliki í  Meistarakeppni kvenna í fótbolta.

Leikurinn fer fram á Samsung-vellinum í Garðabæ og hefst klukkan 19.15 en þarna eru Íslands- og bikarmeistarar Stjörnunnar að mæta Breiðabliki sem varð í 2. sæti í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð.

Sigurður Óli komst mikið í fréttirnar síðasta haust þegar hann missti af rangstöðu í fyrra marki Stjörnunnar í úrslitaleik FH og Stjörnunnar um Íslandsmeistaratitilinn. Stjarnan vann leikinn og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn.

Ólafur Karl Finsen kom þá Stjörnunni í 1-0 á 40. mínútu en það mark átti aldrei að standa því hann var rangstæður þegar samherjar hans framlengdu fyrirgjöf Niclas Vemmelund.  

FH nægði jafntefli í leiknum en Stjarnan vann 2-1 þökk sé sigurmarki Ólafs Karls Finsen úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

FH-ingar voru vægast sagt mjög ósáttir með Sigurð Óla eftir leikinn og talsverðir eftirmálar voru af leiknum eins og frægt er.

Sigurður Óli Þórleifsson hætti sem aðstoðardómari eftir tímabilið og leikur FH og Stjörnunnar var því hans síðasti leikur sem aðstoðardómari í Pepsi-deildinni.

Sigurður Óli verður aftur á móti dómari í íslenska fótboltanum í sumar en auk þess að starfa sem FIFA aðstoðardómari hefur hann dæmt í neðri deildunum undanfarin ár.

Sigurður Óli fær flott verkefni í kvöld þar sem tvö af bestu kvennaliðum landsins mætast í baráttunni um hver getur kallað sig meistara meistaranna.


Tengdar fréttir

Jón Rúnar: Sigurður Óli gortaði sig af dómnum á þjálfaranámskeiði KSÍ

Jón Rúnar Halldórsson, formaður Knattspyrnudeildar FH, er langt frá því að vera sáttur með frammistöðu aðstoðardómarans Sigurðar Óla Þorleifssonar í úrslitaleik pepsi-deildarinnar 2014 en það kemur fram í pistli Jóns Rúnars á heimasíðu FH-inga sem ber nafnið: Að una ekki niðurstöðu en lifa með henni.

Kristinn Jakobsson: Menn þurfa að lifa með þessu

Eitt af síðustu verkum Kristins Jakobssonar sem knattspyrnudómara var að dæma vítaspyrnuna sem tryggði Stjörnunni sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í sögunni. Um áramótin leggur hann flautuna á hilluna fyrir fullt og allt og segist hann sáttur við ákvörðun sína




Fleiri fréttir

Sjá meira


×