Heilsa

Búið í gámi

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Nú velta margir fyrir sér húsnæðismálum og breyttum áherslum þar.

Fólk er oft ósátt við að borga mikið í húsnæði og vill geta eytt meiri tíma í að njóta lífsins og gera það sem þeim þykir skemmtilegt. Auk þess sem það er minna umhverfisfótspor af því að búa smátt.

Tiny housemovement er nafn yfir lífstíl þar sem fólk kýs að einfalda líf sitt og búa smátt, hámarka notkun rýmisins, spara pening og nýta rýmið betur (þar meðtalið jörðina).

Víða í stórborgum líkt og New York og San Francisco eru komnar stórir hópar fólks sem kýs að lifa þétt og smátt.

Fólkið sem nýtir sér þetta einna helst er vel menntað og á miðjum aldri.

Vísir/Skjáskot
Ein hjón byggðu sér einmitt mjög þægilegar vistarverur sem eru einungis 19 fermetrar en hafa allt sem þau þurfa úr húsnæði og er á hjólum svo þau geta flutt sig um set ef þeim langar til þess.

Áður en þú ferð af stað er gott að fara yfir þennan gátlista.

Það er vissara að gera þetta allt saman með leyfi frá yfirvöldum.

Þessar myndir ættu að kitla hvern sem er til að hugsa út fyrir kassann og byggja sjálfur sitt eigið hús og það á hagkvæman hátt.

Hér má sjá inn eftir húsinu séð frá eldhúsinuVísir/Skjáskot
Engu til sparað í eldhúsinuVísir/Skjáskot
Kósí horn, borðstofa og skrifborðVísir/Skjáskot
Það má elda hvað sem er í þessu eldhúsiVísir/Skjáskot
Hvert einasta rými er nýttVísir/Skjáskot
Hggulegt!Vísir/Skjáskot





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.