Tónlist

David Hasselhoff fer á kostum í kynningarmyndbandi fyrir sænska stuttmynd

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
David Hasselhoff fer sannarlega á kostum í kynningarmyndbandi fyrir King Fury.
David Hasselhoff fer sannarlega á kostum í kynningarmyndbandi fyrir King Fury.
Í lok árs 2013 ákvað leikstjórinn David Sandberg að hefja á Kickstarter söfnun fyrir stuttmyndina Kung Fury. Alls söfnuðust 630.000 dollarar en upphaflegt markmið var 200.000 dollarar. Myndinni verður dreift frítt á netinu og verður hún frumsýnd 28. maí næstkomandi. Af því tilefni gáfu aðstandendur út tónlistarmyndband með

David Hasselhoff í aðalhlutverki.

Lagið kallast True Survivor og strandvörðurinn fyrrverandi fer á kostum í því. Margir hafa talað um að myndbandið sé eins og að stíga inn í tímavél og hverfa aftur til níunda áratugarins.

Líkt og áður segir söfnuðust 630.000 dollarar til að gera myndina en Sandberg hafði gefið út að ef næðist að safna milljón dollara yrði gerð mynd í fullri lengd. Því miður náðist það ekki.

Myndband við lagið True Survivor má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.